Færsluflokkur: Bloggar

Letin allsráðandi....

Já ég veit ekki hvað er eiginlega í gangi með mig....er alveg ótrúlega löt að blogga... og bara yfirleitt að sitja fyrir framan tölvuna, en það er eins gott að fara að starta sér í þessu öllu saman þar sem allt er að fara í gang í skólanum....

Þetta er búið að vera annasamt sumar einhvern vegin en líka frábært, og er veðrið þar búið að slá rækilega í gegn, þetta er búið að vera frábært.... ég hef aðallega verið í bænum í sumar, fyrir utan að vera að vinna í sumarbústaðnum, það hafa nánast allar helgar í sumar farið í vinnu þar, það er bara skemmtilegt, rafmagn komið loksins og vatnið á leiðinni, þannig þetta er allt að gera sig....

 

kveðja

Anna Ruth 


Smá blogg....

Já það fer lítið fyrir blogginu þessa dagana, ferðalög og útivera hefur verið í algleymingi, bara yndislegt, núna er farið að saxast á sumarfríið og alvaran að taka við. Við fórum í Þakgil núna í sumar og það er frábær staður við vorum mjög heppin með veður Spánarverður allan tíman en við vorum þar í þrjá daga, fórum í tveggja tíma fjallgöngu ( frekar erfitt Sick ) en þetta hafðist allt, þarna er hægt að fá leigð lítil hús, mjög notalegt....

Núna er í athugun tiltekt á heimilinu áður en vinnan hefst, svona á milli sólbaða, t.d. er veðrið núna alveg yndislegt sól en samt bara 10 stiga hiti ( maður er orðin svo góðu vanur 20 og yfirSmile  ) jæja best að drífa sig út í garð...

kveðja

Anna Ruth

 

 


Verknámið gengur vel og lýkur eftir rúma viku..... :)

Já þá held ég að sé komin tími til að blogga.... ég hef bara ekki gefið mér tíma til þess, eiginlega sef á milli vakta... það er eins og maður sé orðin svolítið lang þreyttur, en þetta lagast allt, alveg að koma sumarfrí...en það er best að hætta þessu kvarti...mér er hugsað til skólasystur minnar hana Erna sem missti mömmu sína á dögunum... já það er mikið álag á henni þessa dagana og búið að vera, í skóla með heimili í verknámi og að missa mömmu sína sem var á besta aldri... æ já þetta líf er ekki alltaf eins og maður vill hafa það frekar ósanngjarnt finnst manni, ég missti mömmu mína þegar ég var rúmlega þrítug þetta var erfiður tími, en fyrir mömmu var þetta mikil líkn.

 Hvað verknámið varðar þá hefur það gengið vel, ég er búin að læra heil ósköp, þetta er búið að vera skemmtilegt og krefjandi. Mjög góður starfsandi á deildinni og leiðbeinandinn góður og afslappaður. En núna er alveg að koma að lokum verknámsins og þá tekur sumarfrí við Smile það verður frábært og vonandi helst veðrið eins og það er búið að vera. Jæja best að fara út í sólina ég á nefnilega einn dag frí og ég ætla að nota hann vel.... bið að heilsa í  bili....

kv Anna Ruth 


Mikið að gera þessa dagana.... :) Hafnarfjörður 100 ára

Já það er sko búið að vera mikið að gera þessa dagana, skemmtidagskrá bæjarfélagsins búin að vera í þrjá daga, svona eins og þrír 17 júní dagar, mjög fjölbreytt og skemmtilegt, já bæjarfélagið 100 ára það er nú aldeilis tilefni til að fagna.

Við fórum með barnabörnin að hlusta á tónlistaratriði á Víðistaðatúni á laugardeginum, þar voru t.d. Vicy Polard hljómsveitin , í henni spilar systurdóttir mín á bassa, þetta er eiginlega stelpu hljómsveit en trommarinn er reyndar strákur, þetta er flott hjá þeim, ný komnar frá Kína úr tónleika ferð sem gekk mjög vel. Já það voru líka kraftar eins og " Júró-bandið " Bjöggi, Sálin, og fl og fl... þetta var mikið fjör.

Við fórum í gærkveldi á Ladda sjóði, Jesús minn ég hélt að ég myndi deyja úr hlátri, hann er ekkert venjulegur þessi maður, það er eiginlega alveg sama hvað hann segir eða gerir hann er alltaf jafn fyndinn, frábær skemmtikraftur, þetta kemur bara beint frá hjartanu...

Eftir þessa viku er verknámið hálfnað það saxast á þetta, þetta er mjög skemmtilegt og ég er búin að læra mikið, og tíminn líður ótrúlega hratt, þetta verður búið áður en maður veit af.

Jæja ég er að fara á kvöldvakt þannig að það er best að reyna að gera eitthvað að viti þangað til..

kveðja Anna Ruth sæl eftir annasama helgi...


Nú er komin tími á blogg...

Það er alveg hrikalega lítill tími núna þegar maður er í 100% vinnu, eða það finnst mér. Það eru öll skilningarvit á fullu... spurning hvort eitthvað hafi farið af heilabúinu á síðustu önn ég vona ekki. En þetta er mjög skemmtilegt en það er líka margt að muna og læra... en þetta kemur allt fyrir rest. Eins núna er svo mikið af nýju fólki þannig að það er frekar þröngt á vaktinni þessa daganna...

 Það var léttir að fá síðasta prófið mér fannst það bara nokkuð þungt enda kom það á daginn en þetta gekk samt alveg ágætlega...Shocking...núna er bara ein önn eftir það er alveg ótrúlegt, tíminn er svo fljótur að líða...jæja núna er ég að hugsa um að fara í bedda morgunvakt á morgun 

kveðja Anna Ruth með sigin augnlokSleeping 

 


Verknámið hafið... dagur eitt..... :)

Verknámið byrjaði hjá mér í morgun... og það bara byrjaði vel, það var tekið vel á móti mér....og ég fékk skáp og alles... þannig þetta er allt í góðum gír.... ég bara væblaðist um og gerði eiginlega ekkert gagn... reyndar aðstoðaði við að skipta um super-púbis legg og þar með er það upptalið...Smile en þetta á örugglega eftir að breytast... það er nú ekki hægt að nota mann mikið svona fyrsta daginn...

 Mér líst vel á starfsfólkið þarna, þarna vinnur einn sjúkraliði með framhaldsnám, það eru tvö ár síðan hún var í náminu... og henni líkar mjög vel, hún segir að þetta sé ekki eins mikið líkamlegt erfiði og var áður en samt stundum erilsamt.... á köflum...

Ég er einhvern vegin þvæld núna, ég er að hugsa um að gera sem minnst ( bara eins og í dag ) núna og bara slappa af... læt þetta duga í bili...

 

kv Anna Ruth verknámsnemi....Smile


Prófin búin og bara sæla :) :) :)

Yndislegt að geta sest niður og prjónað, slappa af og bara cilla eins og krakkarnir segja..... það kom að því....Smile það er svo yndislegt verður núna, ( allavega hér fyrir sunnan ) ég fór áðan og keypti hvítgreni  ( svona dverga greni ) og ætla að setja það í beð á pallinum...en það er nú ekki komið mikið af plöntum á gróðrarstöðvarnar... en þó aðeins Garðheimar voru að auglýsa afslátt á plöntum.... en auðvita sáust þær varla þær voru svo litlar ... svona er maður narraður á staðinn og svo kaupir maður bara miklu dýrari plöntur Blush... maður er alltaf að láta ræna sigErrm...æ þetta er svo skemmtilegt.... allt að lifna við og ég búin í prófum geggjað....

kv. Anna Ruth í sumarskapi....


Yes.... prófið í lyfhrifafræði gekk upp.... :)

Já mín er frekar glöð þessa stundina.... Grin  sit núna og blogga smá og hlusta á Chris Isaak Smile.. en ég held að það sé ærin ástæða til að óska okkur öllu til hamingju sem erum sama í framhaldsnáminu með árangurinn þettaer strembið... en ég held bara að þetta hafi allt gengið upp hjá okkur... áfram stelpur.....og gangi okkur vel á morgun.....

 kv Anna Ruth


Nýjasta fjölskyldu myndbandið

 

Þetta er allt að koma með bústaðinn kannski getur maður farið að vera þar í sumar.allir að mæla og pæla.

Kveðja Anna Ruth


Byrjuð að lesa fyrir næsta próf... alveg að gleyma hinu...... :)

Já núna er það bara næsta törn...vonandi verður þetta ekki eins strembið og það síðasta....Annars er ég búin að vera svolítið löt í dag fór t.d. áðan og fékk mér ís með öllu tilheyrandiWhistling....

En ég er samt að reyna að halda mig við efnið t.d. eins og núna sit bara og blogga... en það verður að gera það annað slagið.. það verður kannski ekki mikið um það næstu daga þegar lærdómur situr fyrir öllu....

Annars skelltum við okkur austur í dag að kíkja bústaðinn... það var ausandi rigning og rok ekta íslenskt veður... við stoppuðum stutt samviskan var alveg að drepa mig, Halo maður þarf helst að sitja við svo að manni líði vel...Smile  nei nei það verður að taka pásu annað slagið...

 Jæja nú ætla ég að lesa svolítið áður en ég fer að sofa....

kv Anna Ruth stútfull af ís....Shocking


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband